25 janúar 2022
GRÓ skólarnir störfuðu með nokkuð eðlilegum hætti þrátt fyrir heimsfaraldur
Öllum skólunum fjórum sem starfa á vegum GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu tókst að halda starfi sínu áfram á síðasta ári með nokkuð eðlilegum hætti og taka á móti nemendum í sex mánaða þjálfunarnámið, þrátt fyrir ýmsar áskoranir tengdar COVID-19 heimsfaraldrinum. Mikil röskun varð á starfinu árið 2020 og þurftu þrír skólanna þá að fresta komu nemenda um eitt ár. Þeir komust hingað loks í fyrra en þá sóttu 90 sérfræðingar frá þróunarlöndunum þjálfun við skólana fjóra hér á landi. Að auki var aftur hægt að standa fyrir námskeiðum á vettvangi.
16 júní 2021
Nína Björk Jónsdóttir nýr forstöðumaður GRÓ
Nína Björk Jónsdóttir hefur tekið við sem forstöðumaður GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Hún tekur við af Friðrik Jónssyni, sem var kjörinn formaður BHM 27. maí sl.
1 október 2020
Friðrik Jónsson tekur við sem forstöðumaður GRÓ
Friðrik Jónsson tók við í dag sem forstöðumaður GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Hann tekur við af Bryndísi Kjartansdóttur sem hefur verið skipuð skrifstofustjóri öryggis- og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
12 mars 2020
Jarðhitaskólinn: Vettvangsferð til Mið- og Suður-Ameríku
Í janúar og febrúar fór Málfríður Ómarsdóttir, umhverfisfræðingur Jarðhitaskólans í vettvangsferð til núverandi og mögulegra framtíðar samstarfsstofnana í Níkaragva, Kólumbíu og Perú. Tilgangurinn var að taka viðtöl við kandídata fyrir sex mánaða þjálfunina á Íslandi, athuga möguleika á samstarfi og skoða bakland jarðhitaþróunar í nýjum samstarfslöndum.
4 febrúar 2020
Forstöðumaður Landgræðsluskóla GRÓ flytur TEDx fyrirlestur
Hafdís Hanna Ægisdóttir, doktor í plöntuvistfræði og forstöðumaður Landgræðsluskóla GRÓ, flutti nýverið TEDx fyrirlestur þar sem hún ræðir hvers konar forystu er þörf á til að takast á við þær fordæmalausu áskoranir sem loftlagsbreytingar fela í sér.
15 janúar 2020
Eykur lífsgæði í þróunarríkjum
Grein um GRÓ - þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu sem birtist í Morgunblaðinu 11. janúar 2020.