Fréttir á íslensku

Ársskýrsla GRÓ 2023 komin út

31 júlí 2024
Nemendur Jafnréttisskóla GRÓ kampakátir við útskrift skólans árið 2023.
Nemendur Jafnréttisskóla GRÓ kampakátir við útskrift skólans árið 2023.

Alls útskrifuðust 92 sérfræðingar árið 2023 úr fimm til sex mánaða námi frá skólunum fjórum sem starfræktir eru á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, þ.e. Jafnréttisskólanum, Jarðhitaskólanum, Landgræðsluskólanum og Sjávarútvegsskólanum. Þá útskrifuðust fimm fyrrverandi nemendur með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu á skólastyrk frá GRÓ en árið 2023 stunduðu alls 36 fyrrverandi nemendur GRÓ-skólanna framhaldsnám við íslenska háskóla, á skólastyrk frá GRÓ.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu GRÓ, sem nú er komin út. Þar er greint frá starfi skólanna fjögurra og miðstöðvarinnar árið 2023. Ýmis styttri námskeið voru einnig haldin á vettvangi í samstarfsríkjum, en rúmlega 300 þátttakendur sóttu þau námskeið á árinu. Árið 2023 skráðu á sjöunda þúsund sig á námskeið sem aðgengileg eru á netinu á vegum skólanna fjögurra auk þess sem einu nýju netnámskeiði var hleypt af stokkunum.

Starfsemi GRÓ er mikilvægur þáttur í þróunarsamvinnu Íslands en þar hefur um áratugabil verið unnið mikilvægt starf til að efla sjálfbæra þróun í samstarfslöndum um heim allan. Sérþekking Íslands á sviði jafnréttismála, jarðhita, landgræðslu og sjávarútvegs, og sú velsæld sem skapast hefur hér á landi á grundvelli hennar, sýnir hvaða möguleikar geta opnast í öðrum löndum með eflingu þekkingar sem miðar að því að stuðla að sjálfbærri þróun og framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

GRÓ starfar undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Í skýrslunni er sérstakur viðauki um starf hvers skóla á vegum GRÓ og einnig er að finna sögur af starfi nemenda eftir útskrift og upplýsingar um áhrifin af starfinu. Í skýrslunni er starfið í fyrsta sinn fært inn í árangursramma GRÓ þar sem umfang starfseminnar er sett fram á samræmdan hátt. Vinnu við mótun árangursrammans lauk einmitt á síðasta ári og er hann hluti af breytingakenningu GRÓ, sem er sú aðferðafræði sem UNESCO notar við árangursstjórnun.

Árið 2023 vann GRÓ með margvíslegum hætti að því að efla samstarfið við UNESCO og tengslanet útskrifaðra nemenda. Í fyrsta sinn var staðið fyrir viðburðum þar sem útskrifaðir nemendur GRÓ komu saman í heimaríkjum sínum, þvert á málefnasviðin, í samstarfi við UNESCO og sendiráð Íslands. Að auki má nefna að gerð var úttekt á styrkveitingum GRÓ til framhaldsnáms til útskrifaðra nemenda.

Uppfært í ágúst 2024: Árskýrsla GRÓ var uppfærð í ágúst með upplýsingum um viðburð með útskrifuðum nemendum sem láðst hafði að geta í fyrri útgáfu skýrslunnar.